.::HELGA::.
04.01.2010 18:14:36 / helgar

Áramótaannáll 2009

Í byrjun ársins 2009 var ástandið hérna heima alls ekki gott, ég var ein af þeim sem að smitaðist af bölsýni og hélt að núna færi allt til fjandans. Árið var vissulega erfitt, ekki fyrir mig persónulega, en fólk í kringum mig missti vinnuna og margir höfðu tapað stórum hluta lífssparnaðar síns. Þó fór þetta blessaða ár betur en á horfðist í ársbyrjun. Jákvæður punktur í byrjun ársins var sá, að ég endurheimti litlu systur mína, ásamt svíninu hennar (nikkið hans), aftur heim frá Danmörku, þar sem þau höfðu stundað listina að drekka mjög dýran bjór í svolítinn tíma. Var mjög fegin að fá hana aftur, þarsem við systurnar erum nánar. Hún ákvað að fullkomna hermikrákuna og stundar nú nám við hjúkrun, enda verður hún yndisleg hjúkka þessi elska. Ég byrjaði í skólanum í janúar, tók þá fög eins og stjórnun, geðhjúkrun og öldrunarhjúkrun. Þær hugmyndir, sem ég lagði upp með í hjúkrun, voru brostnar sökum ástandsins í landinu, og nú eru hjúkrunarfræðingar í vandræðum með að ráða sig í vinnu, áður fyrr var setið um okkur. Vonandi fer að birta til í atvinnumálunum og vonandi stíga hjúkrunarfræðingar ekki skref afturábak í kjarabaráttu sinni.
Í stjórnun lærði ég mikið um markmiðasetningu og ákvað að fara eftir því sem ég hafði lært (ótrúlegt en satt þá las ég helling í þessu fagi) og setti mér flott markmið fyrir árið. Ég tel mig hafa náð þeim flestum, en sum eru þó enn í vinnslu. Eitt markmiðanna var það að ná kílóafjöldanum niður. Í lok mars skráði ég mig á átaksnámskeið í Hress og var mánuði síðar orðin 5 kílóum léttari JÉg og Bjössi minn, reyndum að temja okkur hollari lífshætti, borða minna og oftar, hreyfa okkur og stunda heilbrigð áhugamál. Þetta skilaði góðum árangri og ég náði af mér 10 kílóum, kýldi fituprósentuna niður og byggði upp heilmikinn vöðvamassa. Ég er hvergi nærri hætt og ætla að ná af mér öðru eins, eða þar til ég er orðin sátt. Er orðin gjörsamlega húkkt á hreyfingu og verð skrýtin ef ég geri ekki eitthvað heilsusamlegt á hverjum degi. Ég minnkaði um 2-3 fatastærðir og get núna loksins farið að fá lánuð föt hjá mjónunum mínum. Passið ykkur bara ;)

Bjössi minn vann, eins og venjulega, myrkrana á milli enda uppskriftin að dugnaðarforki, með endalausan metnað, að finna í þessari elsku. Núna í haust fannst honum svo ekki nóg að vinna aðra hverja helgi, heldur ákvað hann að spila líka á næturnar,  þær helgar sem hann vinnur. Fyrir peninginn sem hann fær, fyllir hann íbúðina af flottum stofumublum eins og mögnurum, spliff, donki, gengjum og gíturum, húsfreyjunni til mikils ama, en hvað gerir maður ekki fyrir þessa elsku ;)

Við vorum dugleg að gera skemmtilega hluti, við fórum á marga tónleika, hjóluðum vítt og breytt, fórum út að borða, í fjallgöngur, riverrafting niður jökulsá, í leikhús og útilegur, svo eitthvað sé nefnt. Við fórum á mettíma í búmmerang um landið, sumsé fram og til baka. Fórum alla leiðina austur á heimaslóðir Björns Inga og komum við í blíðskaparveðri á nokkrum fallegustu stöðum landsins, eins og Ásbyrgi og Mývatni. Þetta var geggjuð ferð, sem kom vel í staðinn fyrir þær utanlandsferðir sem við höfum alltaf farið í á hverju ári. En nú var það bara að spara peningana og skoða föðurlandið, maður ætti að gera meira af því...

Elskuleg frænka mín, hún Sigríður Ása, eða Sirus eins og ég kýs að kalla hana, giftist þessum ágæta pilti, honum Andra Ólafssyni, í sumar og var brúðkaupið  þeirra með eindæmum fallegt og óhefðbundið. Þetta var ein skemmtilegasta brúðkaupsveisla sem ég hef farið í, dansað frameftir öllu og gist í tjaldvagni í sveitinni8)
 Hún yfirgaf svo landið aftur og stúderar nú í Amsterdam, á milli þess sem hún hámar í sig hasskökur og fer í Rauða hverfið.  Fyrst við erum komin til Hollands, þá er rétt að minnast þess,að hingað til landsins mætti engin önnur en HollÍslendingurinn og dansarinn mikli Björk Gunnarsdóttir og heiðraði okkur með nærveru sinni núna á seinnihluta ársins. Það var gaman að sjá hana og okkur stelpunum finnst alltaf jafnskrýtið hvað við erum alltaf eins, fyrir utan það að merki um ungdóm okkar eru örlítið byrjuð að dofna.

Stefán bróðir og Sóley áttu pappírsbrúðkaup í ágúst og ekki nóg með það, þá eignuðust þau yndislega litla prinsessu, hana Vilborgu Sögu,sem er hópi mestu krútta heimsins.

Já, börnunum fjölgaði svo sannarlega, Hjördís mín og Logi fluttu heim frá Ástralíu og eignuðust lítinn demant, hana Ninju Ýr, Sunna og Geiri fengu líka eina prinessu hana Kötlu Maríu og Þórunn frænka mín, ásamt Ladda sínum, eignaðist hana Elínu Dögg. Fleiri vinkonur mínar eignuðust börn á þessu ári, Ósk gerði sér lítið fyrir og átti tvíbura, dreng og telpu, Hildur eignaðist hann Gumma sinn, Arnheiður eignaðist lítinn dreng og Berta eignaðist litla skvísu, svo eitthvaðsé nefnt.

Nú mamma mín og pabbi hafa það alltaf jafn náðugt, fluttu nánast upp í bústað þegar sólin tók að hækka á lofti. Fóru á golfnámskeið og eru orðin gjörsamlega húkkt, sem er bara af hinu góða. Þau virðast yngjast með árunum og eru alltaf jafn yndisleg og jafngóðir vinir mínir.

Afarnir mínir hafa haft það gott með vinkonum sínum. Afi Deddi óstöðvandi í dansinum, tennisinum og óhaggandi í pólitíkinni, helvítis tíkinni sem hún getur verið, eins og hann segir svo pent. 
Yndislegur maður þarna á ferðinni, þó hann hafi verið haldinn kosningaálögum síðan í sumar:)

Prófin á vormisseri gengu eins og í sögu og áður en ég vissi af, var ég mætt á blessuðu Hrafnistuna, þar sem ég kann svo vel við mig. Mér þótti svo heillandi að vera á hærri launum og að vinnan væri nær en LSH, svo hún varð fyrir valinu. Ég veit ekki hvort það var hitinn á deildinni minni, þar  sem konurnar vildu helst hafa ofnana á 5 þrátt fyrir um 20°C hita úti, en þá þótti mér þetta sumar alveg með eindæmum gott, veðurfarslega séð.

Sumarið var notað til að slaka á, fara upp í sumarbústað, tjútta með stelpunum, halda matarboð, svo eitthvað sé nefnt.  Hápunktur sumarsins hjá okkur vinkonunum var klárlega þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en ég fór þangað í fyrsta sinn. Þessi helgi var vel heppnuð í alla staði og ég hefði verið til í að upplifa hana aftur og aftur. Það er ekkert yndislegra en að veraí góðra vina hópi, í bongóblíðu í andrúmslofti sem er ólýsanlegt. Það kom svo skemmtilega á óvart að Agnes og Kristjana mættu óvænt á svæðið. Kristjana býr í Danmörku og er búin að ná sér í danskan mann, hann Michael, sem er með eindæmum skemmtilegur fýr.

Stelpurnar mínar urðu allar frekar stórar í ár, Lilja Særós flutti að heiman, það gerði einnig Kristín Erla, Svava flutti inn til Skúla síns og Agnes og Gunni fluttu búferlum.

Við stelpurnar vorum allar duglegar að vinna og hefðum mátt vera duglegri að hittast, en við bætum bara úr því á þessu ári. Dugnaðarforkar hópsins,eins og Snædís, voru óstöðvandi og eru nú orðnir svo klárir og háfleygir í sínu starfi, að maður þarf orðið túlk til að slúðra við þá ;)

Bjössi minn varð svo þrítugur, en hann er með eindæmum unglegur og skemmtilegur, þrátt fyrir háan aldur. Hann sagðist ekki myndi erfa það við mig ef ég færi að yngja upp, en ég kann best við hann og held mig við hann næstu 60 árin, ef ég fæ einhverju ráðið og fæ hann til að borða hollar og hreyfa sig meira.

Framundan eru mjög spennandi tímar hjá mér, Bjössa og fleirum. Við erum allar vinkonurnar, Svava, Steina, Ég, Lilja, Stína og Snædís,að fara að útskrifast í vor og við tekur framhaldsnám hjá okkur flestum, þó ekki strax eftir útskrift. Maður gerir eflaust heiðarlega tilraun til þess að fá ráðningu á einhverjum æðislegum vinnustað, nýtur sumarsins í botn og hefur það náðugt næsta haust. Svo ætlar Dóra vinkona að gifta sig en það verður bara gaman 
J Ég sé fram á, að þetta ár verði það allra besta sem ég hef upplifað og vona að það verði eins hjá þér vinkona/vinurgóð/ur.

Verið jákvæð, hjálpsöm og góð hvert við annað. Ræktið vel samböndin ykkar, því það er jú fólkið í kringum mann sem skiptir mestu máli 

Hér koma svipmyndir frá árinu sem var að líða :)
>

>

Venjulegustu vinir mínir


Æskuvinkonurnar í stuði!


Nokkrum kílóum léttari


Björn Ingi og Margrét í skírn Vilborgar


Anna og Sólveig með Elínu frænku


Erna mín orðin fatahönnuður :)

Ég með splunkunýja Vilborgu Sögu


Margrét Nótt að pósa


Ég og Björn á þrítugsafmæli hans

Þjóðhátíð 2009 :) Snilld

Við Goðafoss í sumar 

Á góðum sumardegi :) Yndislegur dagur!

Margrét og ég fórum í menningarferð

Árla morguns á þjóðhátíð

Með Hrafnistuskvísunum sem ég kynntist í sumar

Bekkjarbíllinn í fyrsta sinn

Skírn Vilborgar og Eiríks

Að hitta Ninju Ýr í fyrsta sinn



Sirius og Andri


Anna mín og Vilborg




 

Afmælisdrengurinn




Flottur eftir raftingferð :)


Simmi með bestu vinum sínum :)

Hjólatúr í blíðunni 

Snilldarkveld með stelpunum




Á toppi Keilis

Sæti minn í Ásbyrgi


Mamma og pobs á leiðinni í brillup

Myndarlegir menn

Við Mývatn


Dansað af lífi og sál



Steina og Ottó í góðum gír á þjóðhátíð



» 4 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 22:13:01 / helgar

Áramótaannáll 2008

Árið 2008 hófst á erfiðan hátt fyrir mig, ég var sveitt, pirruð og alveg hryllilega leiðinleg fyrstu 2-3 vikur ársins, en það borgaði sig svo sannarlega. Jú, ég sparaði mér vel yfir 200 þúsund kall með því að hætta að reykja, segi ekki að ári seinna, langar mig ennþá í sígarettu, en löngunin stendur yfir í svona 5 sekúndur og svo er ég farin að hugsa um eitthvað annað.  Ég ákvað þetta með nánast viku fyrirvara og sagði fáum frá og þar sem að ég var hrædd um að falla, en hér er ég enn, reyklaus og á eflaust eftir að lifa lengur en ella :) Bjössi minn var æðislegur við mig og studdi mig alveg svakalega vel, ef það væri ekki fyrir hann, væri ég ennþá reykjandi.

Það gerðist margt á þessu ári, bæði góðir og slæmir hlutir.  Ég var í fyrsta skipti búin í prófunum í byrjun mars en það var tekin keyrsla á bóklegum fögum, prófað, farið í verknám og ég var búin í skólanum í mars. Eftir að ég kláraði skólann tók Hrafnista við, ég vann þar þangað til í ágúst. Mér fannst ég hafa mikið lært og var hálf hrædd við að taka þeirri ábyrgð sem að fylgir starfinu, en það gekk mjög og ég var orðin eins og „pró“ áður en langt um leið. Núna styttist í að ég klári námið og ég hef ákveðið að reyna að komast beint eftir það inn í ljósmóðurina, en ég er ekki vongóð þar sem að það eru bara teknir inn 6 á hverju ári og það er lítil hætta á að maður fari út í nám miðað við hvernig ástandið er núna. Ég kemst þá bara inn í annarri tilraun :)

Ég fór í mína fyrstu aðgerð á árinu og vonandi þá síðustu. Er líffærinu léttari, Björn Ingi minn fékk einnig að prófa hvernig það er að líða út af. Hann fylgdi mér inná skurðstofuna, þessi elska, til að halda í hendina á mér meðan ég sofnaði. Síðasta sem ég man var að fá æðalegg, ofurskammt af kæruleysislyfjum og springa úr hlátri þegar að Björn Ingi stóð upp og leið útaf. Þarf að herða hann aðeins ;)

Við vinkonurnar urðum flestar hverjar 25 ára á árinu, aðrar létu sig dreyma um að vera 25 ára.  Ég og Agnes mín héldum upp á afmælið okkar saman á Kúltúra í apríl, þemað var Charleston tímabilið og nánast allir mættu með eitthvað eða í fullum skrúða. Bjössi minn var svo yndilegur að gefa mér píanó í afmælisgjöf en það hefur verið mikið spilað á það síðastliðið árið. Ég er alltaf að bæta mig, er farin að geta sungið með flóknum undirspilum og stefni á að verða ennþá betri á næsta ári. Mér finnst alveg æðislegt að spila á píanóið og syngja og hugsa að ég reyni að fá vinnu við að spila í brúðkaupum næsta sumar, svo endilega hafið mig á bak við eyrað.  Ég fékk líka hjól í sumar, en mínu var stolið frá mér í byrjun sumarsins, ég notaði það til að hjóla í vinnuna og ætla að vera ennþá duglegri næsta sumar.

Börn vinkvenna minna héldu áfram að vaxa, flest alltof hratt, þau eru nú farin að babla og sum tala reipirennandi og hafa sterkar skoðanir á hlutunum. Alveg ótrúlegt hvað þessi litlu kríli eru stutt „lítil“. Margrét Nótt frænka mín bætir við sig endalaust af orðum á milli heimsókna og við unum okkur best saman liggjandi í gólfinu í leik. Natalía Nótt, dóttir Dóru, er orðin algjör pæja og farin að suða um að hún eigi ekki nóg af fötum, 4ra ára gömul. Haukur Víðir og Jón Frank hlaupa orðið um og leika sér og babla. Börnin hennar Snædísar eru öll orðin svo stór og myndarleg að mér hálfbrá við að sjá þau í afmæli seint á árinu. Heiða bætti í barnahópin, skírði drenginn Hrafnkel Inga og þau hjúin komu öllum að óvöru með því að gifta sig í skírninni. Berta hjúkka á von á barni núna í febrúar, Sigrún  á von á öðru beibý og hún Margrét Hildur er með lítinn unga í bumbunni sinni, svo það  heldur áfram að fjölga börnunum í kringum mann. Hjördís Ýr fór til Ástralíu í framhaldsnám og hún og Logi komu öllum á óvart með að gifta sig áður en þau fóru út. Þau stefna þó á að hafa veislu einhverntímann þegar þau koma heim, hvenær sem það verður :) Hjördís er nú orðin meistari og með plagg upp á það! Sunna og Geiri trúlofuðu sig núna um jólin en þau hafa verið saman frá því á steinöld og því tilvalið að draga upp hringa. Sigríður frænka og Andri hennar trúlofuðu sig einnig og stefna á að gifta sig næsta sumar sem er mikið tilhlökkunarefni. Dóra mín og Nonni eru tekin aftur saman, sem mér finnst yndislegt og við höldum áfram að vera bestu vinkonur og stöddíböddís.

Anna systir og Björn Ingi minn kláruðu stúdentinn í sumar, stolt af þeim. Björn Ingi var þó aðeins seinn  með  þetta en eins og hægt er að segja góðir hlutir gerast hægt ;) Hann stefnir svo á háskólanám fyrir skalla, engin pressa, engin pressa ;) Við höfum það alltaf jafn gott saman, er ennþá með fiðrildi í maganum þegar ég sé hann, við erum bestu vinir og látum ekkert á okkur fá.  Við gerðum heilmargt skemmtilegt á árinu. Við fórum tvisvar til útlanda, til Tyrklands þar sem við skoðum okkur mikið um, lærðum að kafa og svo til Danmerkur þar sem við ráfuðum um og heimsóttum systur mína. Við fórum á ættarmót fyrr í sumar og fórum í Skaftafell og skoðuðum okkur um og gengum upp að Svartafoss og margt margt fleira.

Við vinkonurnar verðum allar nördar á næstu önn en Kristjana vinkona er flutt til Danmerkur þar sem hún leggur stund á arkitektúr og Agnes ætlar að fara í grunnnám í upplýsinga og fjölmiðlafræði (það minnir mig allavega að þetta heiti ;)). Það verður gaman að við séum allar í skóla, verðum allar á kafi í prófum á sama tíma og svoleiðis. Anna systir tók sig til og flutti með honum Birni Braga til Danmerkur í sumar. Anna ákvað að fara í lýðháskóla þar sem hún lærði að syngja, taka myndir, drekka bjór, leika á hljóðfæri og tala dönsku. Björn fór í skiptinám í viðskiptafræðinni, þau komu svo heim núna um áramótin og Anna mín ætlar líka í skóla. Hún er komin með inngöngu í HR og ætlar að stúdera þar heilbrigðisverkfræði :) Rakel vinkona er nú að breytast í dana, enda unir hún sér vel þar og mér heyrist hún ekkert vera á leiðinni heim.

Bróðir minn giftist henni Sóleyu sinni í sumar og var það yndislegur dagur sem á eftir að lifa endalaust í minningunni, þau eru yndisleg saman. Gæsunin hjá Sóley hafði farið fram nokkru áður en það var ekkert smá skemmtilegur dagur, ég hvet ykkur öll til að gifta ykkur, ég gæti vel þrifist á þessu ;)

Ég hélt áfram í dansinum og ætla núna að fara í ræktina og í háskóladansinn til að breyta til, enda það mikið ódýrara og kominn tími til að breyta til, hvet ykkur öll með mér í dansinn, maður þarf ekki að vera í háskólanum til að vera með.  Við vinkonurnar fórum ekki í neina útilegu saman og höfum í raun og veru verið frekar lítið saman, enda allar á kafi hver í sínu horni. Það verður örugglega breyting á því á þessu ári :)

Fjölskyldan mín hefur það gott, pabbi fékk sér langt jólafrí, systir mín er komin heim til okkar, bróðir minn hefur það gott með fjölskyldunni sinni og mamma mín er í stuði fyrir utan að vera að glíma við handboltameiðsl sem hún kallar vængbrot.

Krepputal og vesen hefur verið leiðinlegt og alveg tekið sinn toll, en maður reynir að láta neikvæðina og svartsýnina ekki ná til sín. Tekur hlutunum bara eins og þeir koma og reynir að vera jákvæður og bjartsýnn, það þýðir ekkert annað. Á sama tíma og allt fór til fjandans fékk bróðir minn blóðtappa í höfuðið ekki nema 29 ára gamall, hann jafnaði sig alveg af því en það fékk mann þó til að hugsa hvað það er sem skiptir virkilega máli í lífinu.

Ég óska ykkur öllum, kæru vinir, gleðilegs árs og vona að þið hafið það gott. Ef við höfum bjartsýnina að vopni og náungakærleikann á hreinu þá blessast þetta allt saman. Ég læt hérna með myndir frá árinu sem var að líða.

Björn Ingi stúdent

Í Hellisgerði við gæsun Sóleyar

Á sjávarbotni í Tyrklandi

Fjölskyldan í 25 ára afmæli mínu

Stefán og Sóley á brúðkaupsdaginn

Kristjana í kveðju/afmælispartýinu sínu

Anna systir á brúðkaupsdegi Stefáns

Anna og Björn Bragi

Gnesi minn

Anna og Björn Ingi í stofunni á Dansker Holgen vej

Í Skaftafelli með Vatnajökul í baksýn

Í 25 ára afmæli Lilju

Bjössi minn við Svartafoss

Við og jólaskrautið í DK

Á útskriftardegi Bjössa

Í Skaftarfelli, fallegast í heimi þar :)

Svava sæta

Snædís og Lilja í afmæli Steinu

Svava og Steina afmælisbarn

Gunni og Gnesi snillingar

Ég, Sigríður og Andri, fallegt....

Snædís sæta á leiðinni að fara að syngja í söngvakeppni KB

Ég og afar mínir í áttræðisafmæli Gauja afa

Við á tónleikum í sumar

Dóra og Bjössi minn flott í afmælinu okkar Agnesar

Við stelpurnar í lok ársins

Allt á kafi í snjó í sveitinni

Ég og Margrét frænka í jólaþorpinu


Píanóið góða

Kristín bjútí á leiðinni á árhátíð

Við systurnar á aðfangadag

Mamma og pabbi í nýja sófasettinu sínu

Bláfjöll í mars

Birnirnir að keppast við að syngja sig inn í hjarta tengdaföður síns

Ásta vinkona og ég í afmælinu hennar

Ég og Agnes afmælisbörn

Margrét Nótt í miklu stuði í pössun hjá okkur í sumar

Við það að missa meðvitund úr hita í Efesus

"Litla" mín á útskriftardaginn

Við brún og sæl, nýbúin að snorkla í sumar


Skemmtileg mynd af mér og Bjögga, takið eftir pabba...

Afi minn og Gógó í stuði :)


Verðlaun ársins:

Mamma ársins: Snædís, sem að á þau 3..

Höstler ársins: Svava, sem gekk út ;)

Hetja ársins: Stefán bróðir

Sökn ársins: Hjördís Ýr og Rakel

Brúðkaup ársins: Brúðkaup Stefáns og Sóleyar

Snillingar ársins: Agnes og Gunnar Karel, saman þegar Agnes er á öðru rauðvínsglasi

Húmoristi ársins: Dóra Stephensen aka Ron Burgundy

Sexí gella ársins: Ingunn

Hljóðfæraleikari ársins: Kristín Erla og Lilja, sem spila ekki á hljóðfæri, gæti orðið innblástur....

Framför ársins:  Ég og reykingaleysið mitt!! VEII

Misskilingur ársins: *trommusláttur*......AGNES GUÐJÓNSDÓTTIR

Húsmóðir ársins: Steina sem nær að halda öllu svo fínu og maður fer aldrei svangur frá henni

Djammari ársins: Lilja Særós

Bjórþambari ársins: Pabbi minn

Vitni ársins: Björn Bragi

Dani ársins: Kristjana Ósk og Rakel

Lærufélagi ársins: Dóra

Fatafrík ársins: Steina

Dansari ársins: Björn Ingi sem neyddist til að dansa við mig 4 sinnum...

Rauðvínsþambari ársins: Agnes aka Masi-Agnes

Ferðalangur ársins: Hjördís Ýr

Kroppur ársins: Steina sem er megafæn

Tölvunörd ársins: Mamma mín

Frænka ársins: Sigríður Ása

Útlendingur ársins: Björk Gunnars

Símablaðrari ársins: Ég, sem sló met í símareikingaupphæð...

Kærasti ársins: Auðvitað minn, hann Björn Ingi

Bloggari ársins: Björn Bragi, hvet ykkur öll til að lesa bullið í honum...>
>


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 15:48:19 / helgar

Áramótaannáll 2007

Komið sæl og blessuð góðu lesendur. Ég vil byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og bráðlega gleðilegs nýs árs. 

Árið sem er að líða hefur án efa verið það fljótasta sem að ég hef upplifað, finnst ekki langt síðan ég hélt upp á síðustu jól. Tíminn líður víst hratt á gervihnattaöld, þegar að það er mikið að gera og gaman hjá manni þá þýtur tíminn framhjá manni.  Ég byrjaði árið á að fá að vita að ég hafði komist inn í hjúkkuna og það mér til mikilla gleði, ég hafði þó enga hugmynd um að háskólanám væri svona tímafrekt og krefjandi. Ég var þó ekki lengi að koma mér í gírinn og sat í skemmtilegum fögum í ár og lærði að mér finnst alveg heilan helling. Þegar að næstu önn er lokið má ég fara að starfa sem hjúkrunarfræðingur og stefni á að vera bara á blessuðu Hrafnistunni í sumar. Eftir þessa önn fer ég bara í hálfgerð sérhæfingafög, barnahjúkrun, hjúkrun krabbameinssjúkra og öldrunarhjúkrun svo e-ð sé nefnt. Þrátt fyrir að vera í krefjandi námi þá hefur mér aldrei gengið betur í skóla og fékk meira að segja 9,5 út úr einum áfanga núna, en mér finnst það stórmerkilegt þar sem ég hef ekki verið með svona háa einkun frá því að ég var 10 ára gömul :)

Ég gerði margt skemmtilegt á árinu, fór 3 sinnum til útlanda, byrjaði á því að fara til Skotlands með m&p og Önnu. Fór því næst til Danmerkur og heimsótti þar Rakeli mína, Line, Matthildi og Sigríði frænku. Í lok sumarsins fór ég svo með honum Bjössa mínum til Spánar. Ég fór á Justin Timberlake tónleika í DK sem var bara gaman, fór í útilegu og göngutúra með honum Bjössa og upp í sumarbústað með fjölskyldunni.  Ég fór líka í fyrsta skipti á ævi minni í kafbát, á úlfaldabak og klappaði gíraffa :)

Ég hélt áfram í dansinum hjá báru og ætla ekki að hætta þar, finnst æðislega gaman að dansa og hvet ykkur öll til þess að koma með mér. Ég fékk rafmagnspíanó á árinu og er búin að vera dugleg að æfa mig, var meira að segja farin að geta spilað og sungið á sama tíma, ég sem get varla tuggið tyggjó og gengið á sama tíma.

Vinkonur mínar gengu sumar út og aftur inn, en merkilegt þótti að hún Agnes Guðjónsdóttir krækti sér í þennan yndislega dreng og hefur haldið í hann dauðataki síðan :D Sumar vinkvenna minna fluttu út og það var erfitt að kveðja tvíburan minn hana Rakeli sem að flúði úr landi til að stúdera snyrtifræði í Danmörku, það lítur allt út fyrir að hún komi ekkert heim á næstunni. Ég verð því að vera duglega að fara til DK, sem er bara hið besta mál. Hjördís Ýr kom heim eftir langa dvöl á Ítalíu og hún staldrar nú ekki lengi því að hún er að fara í framhaldnám í Ástralíu...gæti eiginlega ekki farið lengra frá mér, en hún kemur nú aftur heim:) Sunna Björg snilingur með meiru útskrifaðist með BS gráðu í vélaverkfræði og starfar nú í ábyrgðastöðu hjá álverinu.  Lilja og Ingunn lögðu fyrir sig sálfræði, Svava lærir nú þroskaþjálfan, Hildur settist á skólabekk í HR , Heiða tók skóla í fjarnámi enda heima með hana Tönju sína og núna eftir áramót bætist hún Kristjana við í nördahópinn okkar góða. Einnig varð Ottó hennar Steinu þrítugur :)

Elskulegur afi minn, sem er án efa nettasti afi í heiminum varð áttræður á árinu, hann heldur þó að hann sé ennþá tvítugur sem er bara gott mál.

Ég sló met í að skipta um hárlit, var dökkhærð, svo rauðhærð, svo dökkhærð, núna er ég ljóshærð og fer að verða dökkhærð aftur, gaman að breyta til, en hef séð það að það fer mér best að vera dökkhærð.

Það sem stendur án efa upp úr á þessu ári eru barneignir vinkvenna minna:) Þær Steina, Erla, Sigrún, Ásta, Guðrún og Heiða áttu allar yndisleg börn á árinu. Það komu 3 strákar í heiminn, þeir Haukur Víðir, Jón Frank og Helgi Stefán. Allt yndislegir töffarar og miklir vinir mínir ;)  Guðrún, Heiða og Sigrún jöfnuðu metin með því að eignast stelpur, en ég var farin að halda á tímabili að tími okkar kvennana væri að líða undir lok....

En lífið er ekki alltaf dans á rósum, núna um jólin missti elskuleg vinkona mín hún Sunna pabba sinn, það eru erfiðir tímar hjá henni núna en hún á góða bakhjarla og við stöndum með henni og sendum henni styrk á þessum erfiðu tímum.

Ég ætla að leyfa myndunum að tala sínu máli

 

Á góðri stundu í DK

Ég og Sólveig frænka í DK

Agnes, Gunnar Karel og Kristjana, nánar tiltekið kvöldið sem að þau kynntust :P

Ég og Bjössi minn við Snorralaug í sumar :)

Við stelpurnar á góðri stundu í sumar

Frá afmælinu hans afa í vor, góð frussumynd af afa og börnunum hans :) 

Fallegustu mömmurnar með ungana sína :)

Gamli öldóhópurinn :)

Bjössi minn og nýji bílinn okkar :)

Við á spáni í sumar

Ég og Rakel í kveðjupartýinu hennar

 

Skvísur 

 Benna sæta, hún er með beibý í maganum, til hamingju með það :)

Við Glym, hæsta foss landsins

Flísalagði loksins hjá mér eldhúsið

Það var farið á djammið af gömlum og góðum vana

Kristín og Kristjana sætar í fantasíupartýinu

Björn Ingi að skíra mig J

Í skotastól í Skotlandi

Sætu sætu vinkonur mínar

Ég og Margrét Nótt litla ljónið

Ég og Rakel mín í DK :)

Fjölskyldan –bróðir minn í Skotlandi

Moms og pobs alltaf jafn sæt :)

Ég og mamma mín á tónleikum með Bjössa

Svava mín sæta í góðum gír í sumar

Í þrítugsafmæli hans Ottó í sumar, bara gaman :)

Litla sæta systir mín :) Er alltaf jafndugleg, fer að verða tvítug og er að klára stúdentinn úr Verslunarskólanum.

Hluti af yndislegum vinkonum mínum, sætar huh?

Sigrún bumbulína

Ég og Dóra mín :) Yndislegust í geimi þessi stúlkukind

Sæta litla fjölskyldan úr setberginu :)

Ég og Björn, elska þennan strák meira en allt :)    

 

Verðlaun ársins:

Mömmur ársins: Allar nýbökuðu mæður hópsins :)

Höstler ársins: Agnes Guðjónsdóttir sem gekk út eitt kveldið

Hetja ársins: Snædís Ögn ofurmamma með meiru

Sökn ársins: Arnar Freyr

Gifting ársins: Kristín Ósk og hennar heittelskaði Stefán

Nýburar ársins: Jón Frank og Haukur Víðir

Snillingur ársins:  Sunna Björg

Húmoristi ársins: Kristín Erla Pé

Sexí gella ársins:  Dóra

Hljóðfæraleikari ársins: Björn Ingi og Gunnar Karel

Framför ársins:  Margrét Nótt litla frænka mín sem að talar orðið

Misskilingur ársins: Agnes 

Húsmóðir ársins: Steina      

Djammari ársins: Lilja

Bjórþambari ársins: Kristín Erla

Lærufélagi ársins:  Dóra

Fatafrík ársins: Rakel           

Dansari ársins: Ingunn

Rauðvínsþambari ársins: Agnes

Ferðalangur ársins:  Ég héld ég barasta

Kroppur ársins: Erla, sem að varð mamma og ofurskvísa 5 mínútum eftir að hún varð mamma

Djammdrottning ársins: Kristín Erla          

Hrakfallabálkur ársins: Lilja Særós

Tölvunörd ársins: Dóra

Frænka ársins: Sigríður Ása

Útlendingur ársins: Björk Gunnars

Símablaðrari ársins: Dóra

Kærasti ársins: Auðvitað minn, hann Björn Ingi

Bloggari ársins: Kristín Erla og Anna sys deila þessu með sér :P

Fæðing ársins: Hjá Steinu sem sagði að þetta væri ekkert mál :) 

Takk fyrir árið góðu vinir og vonandi verður það næsta enn betra :)


» 9 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
16. mars 2010
Könnun
Kreppan?